Sterkur tekjuvöxtur og bætt afkoma milli ára á fyrstu níu mánuðum ársins, þrátt fyrir lægri EBITDA
- Rekstrartekjur fyrstu níu mánuði ársins 2026 námu 56,3 milljörðum króna (€392,7m), sem er 13% aukning frá sama tímabili árið 2025
- Framlegð nam 4,9 milljörðum króna (€34,4m), samanborið við 4,9 milljarða króna (€34,2m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025
- EBITDA nam 1,8 milljörðum króna (€12,6m), samanborið við 2,0 milljarð króna (€14m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025
- 12 mánaða rúllandi EBITDA nam 3,1 milljörðum króna (€21,4m)
- Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi nam 604 milljónum króna (€4,2m), samanborið við 582 milljónir króna (€4,1m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025
- Hagnaður eftir skatta nam 449 milljónum króna (€3,1m), samanborið við 364 milljónir króna (€2,5m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025
- Hagnaður á hlut fyrir 9M 2026 er 0,15 ISK, samanborið við 0,12 ISK fyrir 9M 2025
- Heildareignir námu 41,6 milljörðum króna (€290,3m) í lok september 2026, sem er hækkun um 6,7 milljarða króna (€46,6m) samanborið við sama tíma árið 2025
- Eiginfjárhlutfall var 29,6% í lok þriðja ársfjórðungs 2026, samanborið við 31,8% ári áður
- Afkomuspá fyrir árið 2026 gerir nú ráð fyrir hagnaði fyrir skatta af reglulegri starfsemi á bilinu 1,2 til 1,5 milljarða króna (€8,5m til €10,5m)
Heildarsala samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi var 17,2 milljarðar ISK (€119,7m) og jókst um 5% samanborið við fyrra ár. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 185 milljónir ISK (€1,3m) sem er lækkun um 72 milljónir ISK (€0,5M) frá sama ársfjórðungi 2025.
Rekstrartekjur starfseminnar í Suður-Evrópu voru 6,6 milljarðar ISK (€45,7m) á þriðja ársfjórðungi, sem er 7% hækkun miðað við sama tímabil árið 2025. Rekstrartekjur námu 22,9 milljörðum ISK (€159,8m) á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er 4,7% aukning frá sama tímabili árið 2025. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 511 milljónum ISK (€3,6m), sem er aukning um 89 milljónir ISK (€0,6m) frá fyrstu níu mánuðum ársins 2025. Tekjur jukust þrátt fyrir minna selt magn.
Rekstrartekjur starfseminnar í Norður-Evrópu á þriðja ársfjórðungi voru 2,3 milljarðar ISK (€16,3m), sem er 16% aukning frá sama ársfjórðungi árið áður. Rekstrartekjur fyrstu níu mánuði ársins voru 7,0 milljarðar ISK (€48,9m), sem er 14,6% aukning frá sama tímabili árið áður. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 150 milljónum ISK (€1,1m) og var svipaður og á fyrstu níu mánuðum árs 2025. Framboð á laxi var gott og verð á fyrri hluta ársins lægra en spár gerðu ráð fyrir. Verð á hvítfiski hækkaði hins vegar verulega vegna takmarkaðs framboðs sem kom í veg fyrir afkomubætingu.
Rekstrartekjur sölu- og dreifingarsviðsins á þriðja ársfjórðungi voru 8,7 milljarðar ISK (€60,8m), sem er 2% aukning frá sama tímabili 2025. Rekstrartekjur voru 27,9 milljarðar ISK (€194,9m) á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er 20,4% aukning frá sama tímabili 2025. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam 323 milljónum ISK (€2,3m), samanborið við 452 milljónir ISK (€3,2m) á fyrstu níu mánuðum árs 2025. Einskiptisniðurfærsla viðskiptakröfu hjá IS France lækkaði hagnað um €0,5m. Mikil eftirspurn eftir hvítfiski og aukið magn uppsjávarafurða, einkum loðnu og síldar, studdu við söluvöxtinn.
Endurskoðuð afkomuspá fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir hagnaði fyrir skatta af reglulegri starfsemi á bilinu 1,2 til 1,5 milljarðar ISK (€8,5m til €10,5m) en hagnaður fyrir skatta á síðasta ári var 1,5 milljarður ISK (€10,6m) . Gert er ráð fyrir áframhaldandi háu þorskverði á árinu þar sem framboð er í sögulegu lágmarki. Uppfærðar spár gera ráð fyrir hækkandi laxaverði á næstu mánuðum.
Viðræður um mögulega sölu á Ahumados Domínguez á Spáni standa yfir samkvæmt tilkynningu þar um en ekki er gert ráð fyrir áhrifum mögulegrar sölu í afkomuspá félagsins. Miðað við núverandi forsendur er verðhugmynd tilboðsgjafa nálægt bókfærðu verði eignarhlutarins. Að því gefnu að rekstur félagsins út árið 2026 verði í samræmi við núverandi áætlanir er gert ráð fyrir að nettóáhrif mögulegrar sölu á afkomu samstæðunnar árið 2026 verði óveruleg. Gangi salan eftir er gert ráð fyrir að söluandvirðið verði nýtt til að lækka skuldir og þar með fjármagnskostnað frá og með árinu 2027, eða til að fjármagna álitleg fjárfestingartækifæri sem styðja við eða styrkja núverandi starfsemi og stefnumörkun samstæðunnar.
Óvissa um alþjóðlegt efnahags- og stjórnmálaumhverfi er áfram mikil og hefur áhrif á flutninga, aðfangakeðjur og verðbólgu á lykilmörkuðum félagsins.
Ægir Páll Friðbertsson, CEO
„Afkoma fyrstu níu mánaða ársins sýnir góðan vöxt í starfsemi Iceland Seafood þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður. Tekjur jukust um 13% frá fyrra ári og hagnaður eftir skatta nam 449 milljónum ISK (€3.1m ) samanborið við 364 milljónir ISK (€2.5) á sama tímabili í fyrra. EBITDA nam 1,8 milljörðum ISK (€12.6m), sem var undir fyrra ári.
Sala jókst á flestum starfssviðum samstæðunnar. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta í Suður-Evrópu jókst milli ára. Afkoma starfseminnar í Argentínu var undir væntingum okkar. Í Norður-Evrópu jókst sala um 15% í verðmætum og 3% í magni. Þá var mikill söluvöxtur í sölu- og dreifingarstarfseminni en á móti lækkaði framlegðarhlutfallið.
Þrátt fyrir góðan vöxt í starfsemi samstæðunnar er afkoma tímabilsins undir þeim væntingum sem við höfðum í upphafi árs og munar þar mestu um að rekstur félagsins í Argentínu hefur valdið vonbrigðum og afkoman þar verið töluvert undir markmiðum okkar.
Afkoman í IS France varð jafnframt fyrir neikvæðum áhrifum vegna einskiptisniðurfærslu viðskiptakröfu að fjárhæð um €0,5 milljónir. Þótt slíkt tap sé óheppilegt er mikilvægt að hafa í huga að áhættustýring og stýring viðskiptakrafna innan samstæðunnar er að öðru leyti sterk. Við höfum farið ítarlega yfir þetta tiltekna mál og gripið til viðeigandi ráðstafana til að draga úr líkum á sambærilegu tapi.
Þegar horft er fram á veginn er undirliggjandi rekstur samstæðunnar traustur. Við höfum brugðist við þeim áskorunum sem komið hafa upp á árinu og leggjum áfram áherslu á arðbæran vöxt, agaða áhættustýringu og bætta afkomu í þeim einingum sem hafa verið undir væntingum. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður hefur félagið náð miklum söluvexti og bættri afkomu eftir skatta frá fyrra ári. Iceland Seafood stendur á traustum grunni og markmið okkar er áfram að styrkja reksturinn og skapa aukin verðmæti fyrir hluthafa, starfsfólk, birgja og viðskiptavini.“
Fjárfestafundir
Iceland Seafood mun ekki halda fjárfestafundi fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung. Fyrirtækið fagnar öllum fyrirspurnum um fjárhagslegar niðurstöður fjórðungsins, og má senda spurningar á netfangið investors@icelandseafood.com
Fyrirtækið mun halda fjárfestafundi í kjölfar annars ársfjórðungs (hálfsársniðurstöður) og fjórða ársfjórðungs (árslokaniðurstöður), þar sem stjórnendur kynna og ræða helstu niðurstöður. Dagsetningar fyrir þá fundi má finna á vefsíðu félagsins www.icelandseafood.com/investors/shareholders/
Fyrirtækið býður alla velkomna í heimsókn sem vilja fræðast meira um starfsemina og annað henni tengt. Sé áhugi fyrir hendi, vinsamlegast hafið samband við Ægi Pál Friðbertsson apf@icelandseafood.com eða Öldu Björk Óskarsdóttir alda@icelandseafood.com
Fyrirvari
Tilkynning þessi er birt og ætluð þátttakendum á evrópskum fjármálamarkaði og ber að líta á hana í því samhengi.
Allar yfirlýsingar varðandi framtíðarsýn í þessari tilkynningu endurspegla núverandi skoðanir stjórnenda á framtíðarviðburðum og niðurstöðu. Það að þessar skoðanir séu byggðar á afstöðu sem stjórnendur telja eðlilegar, er engin trygging fyrir því að atburðir og skoðanir verði að veruleika. Framtíðarsýn felur eðlilega í sér óvissu og áhættu; niðurstöður geta verið frábrugðnar fullyrðingum eða skoðunum sem settar eru fram.
Frekari upplýsingar:
Iceland Seafood International hf.
http://www.icelandseafood.com/Investors
Ægir Páll Friðbertsson, apf@icelandseafood.com
Comments (0)
Login to join the conversation
Login / RegisterNo comments yet. Be the first to comment!